DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

BIRKIKROSSVIÐUR – 6,5mm 125X250CM

Vörunúmer: int-rbgw045060
10.994 kr.m/vsk
Á lager

Stærð: 125x250cm

International Plywood Birkikrossviður
Russian birch plywood – WBP (RBGW) frá International Plywood
Eiginleikar: 1,5mm þykk lög.
Lím: WBP (Water and Boil Proof) með gæðastaðalinn EN 314-2 class 2.
Þéttleiki: Um 650 kg/m3
Vottun: CE-2+
Grade: CP/CP

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Græn vara
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Almennt
Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Plötuefni þetta er mikið notað í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að harðari og mýkri viður skiptast á, en yfirleitt er krossviður framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðvið. Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf 90° miðað við lagið á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman með hita og límd með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem verpist ekki eða minnkar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.
Krossviður er mikið notaður þar sem þörf er á léttu, sveigjanlegu byggingarefni sem auðvelt er að vinna hratt og auðvelt er að endurnýta. Hann er þannig notaður t.d. við bátasmíðar (með vatnsheldu lími) og leikmyndagerð, svo eitthvað sé nefnt.