DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Deka

DEKA LATEX (5KG)

Vörunúmer: syn-29y40
7.999 kr.m/vsk
Á lager

Deka Latex er vatnsþynnanlegt steypulím og íblöndunarefni fyrir múr, múrblöndur og tjöruefni. Notað til að auka viðloðun, vatnsþéttileika, efnaþol og slitstyrk. Blandað í sement er það tilvalið sem múrlím blautt í blautt. rakaþolið og kjörið til að nota utanhúss.

Tækniblað – Deka Latex

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Deka Latex er Styrene-Butadiene-Rubber-fopolymer; SBR.

Efnislýsing
Deka latex er vatnsþynnanlegt steypulím og íblöndunarefni fyrir múr, múrblöndur og tjöruefni sem inniheldur styrene-butadine copolymer. Lausnin er frost/þýðu stöðug. Hún inniheldur efni sem koma í veg fyrir að hún freyði. Varan inniheldur ekki APEO (Alkylphenol Ethoxylates) né ammoníak.

Eiginleikar Deka latex

  • Þurrefni (ISO 3251) 47,0%
  • pH 10,0
  • Seigja (e.viscosity) Brookfield LVF, 60 rpm (ISO 1652) 90 mPas

Notkunarsvið

  • Deka latex er íblöndunarefni í steypu, múrblöndur og flotefni sem eykur viðloðun, vatnsþéttni, efnaþol og slitstyrk.
  • Deka latex blandað sementi er tilvalið sem múrlím blautt í blautt.
  • Deka latex er einnig rakaþolið og kjörið til notkunar utanhúss.
  • Þegar Deka latex er blandað í múr og steypu þá eykur að aðeins loft í blöndunni og því skal taka tillit til þess við notkun loftblendiefna

Meira frá Deka

Allar Deka vörur