DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

FURUKROSSVIÐUR – 18MM 7 LAGA 122X244CM

Vörunúmer: ply-elio-18x122x244
9.199 kr.m/vsk
Á lager

Stærð: 18mm 7 laga 122x244cm

Elliottis pine plywood (ELPU) er furukrossviður sem kemur aðallega frá Brasilíu. Þessi viður er sterkur og afar hagkvæmur í verði með tilliti til byggingaframkvæmda. Tilvalinn í veggi, gólf og til pökkunar.
Eiginleikar: C+/C
Lím: WBP (Water and Boil Proof) í samræmi við enska staðalinn BS 1455.
Þéttleiki: Um 550 kg/m3

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Almennt
Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Plötuefni þetta er mikið notað í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að harðari og mýkri viður skiptast á, en yfirleitt er krossviður framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðvið.
Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf 90° miðað við lagið á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman með hita og límd með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem verpist ekki eða minnkar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.
Krossviður er mikið notaður þar sem þörf er á léttu, sveigjanlegu byggingarefni sem auðvelt er að vinna hratt og auðvelt er að endurnýta.