DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

Jarðvegsdúkur 120g/fm 1,0m x 50mb

Vörunúmer: cor-19/19c/01-0030
15.995 kr.m/vsk
Uppselt

Jarðvegsdúkur frá SECCO 120g/m2

  • Hentugur í kringum drenlagnir
  • Bætir vatnsflæði
  • Kemur í veg fyrir blöndun efna milli jarðvegslaga
  • Gerir jarðveg stöðugri.

Mikið notaður þegar gangstéttar eru steyptar, stígar gerðir, innkeyrslur hellulagðar eða steyptar og við pallasmíði.

Fyrir verktaka þá getum við útvegað jarðvegsdúk í breiddunum 1,5m og 2m. Rúllurnar eru alltaf 50m að leng.

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • jarðvegsdúkur
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Jarðvegsdúkur frá SECCO er hannaður til að gera jarðveg stöðugann og koma í veg fyrir að fínni efni sígi úr lögum fyrir ofan jarðvegsdúkinn.

Jarðvegsdúkurinn hentar vel við frágang á drenlögnum og öðrum lögnum sem liggja í jörðu.

Gott er að nota jarðvegsdúk þegar hellulagt er, bæði milli grófa undirlagsins og sandlagsins.

Jarðvegsdúkur er góð lausn undir timburkurl í beðum og eins má leggja hann ofan á jarðveg undir sólpöllum til að draga úr líkum á að gróður vaxi.

Polyester án bindiefna

SECCO jarðvegsdúkur er framleiddur úr Polyester sem er vafið saman án þess að nota bindiefni.

Jarðvegsdúkur tækniupplýsingar

Jarðvegsdúkurinn er 120g/fm +/- 10%
Static Puncture Resistance (kN): 0,55
Dynamic Puncture Resistance: 45mm
Breidd 1m – 50m á rúllu (hægt að fá í metratali)

Ertu að leita að jarðvegsdúk eða yfirbreiðslu fyrir blómabeð? Múrbúðin býður uppá margar gerðir, þú getur séð hluta úrvalsins [Hér]