

OSB 3 SE PLÖTUR – 11MM 122X244CM
OSB 3 SE plötur – rakaþolnar
Stærð: 11mm 122x244cm
Múrbúðin selur eingöngu umhverfisvænar FSC vottaðar OSB plötur.
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
- Græn vara · krossviður
Vörulýsing
OSB 3 (Oriented Strand Board) eru pressaðar byggingarplötur úr grófum tréspæni, aðallega furu- og greni, og eru límdar saman með vatnsheldu formaaldehýð fríu lími. OSB 3 plöturnar eru rakaþolnar, en þó er ekki ráðlegt að nota þær óvarðar utanhúss. Hægt er að nota plöturnar í burðarvirki gólf, veggi og fleira.
Vegna náttúrulegs viðarlitar er OSB plötur einnig áhugaverður kostur til að ná fram skemmtilegum áhrifum í innréttingum og veggjum. Það er auðvelt að saga, bora, og slípa OSB plötur.
Múrbúðin selur eingöngu umhverfisvænar OSB plötur sem hafa FSC vottun.
Timburvörur sem hafa FSC vottun koma úr sjálfbærum skógum. Með því að velja FSC vottaðar timburvörur tryggir þú að komandi kynslóðir geta notið skóga.
Tengdar vörur
Sjá allt í OSB plötur
