DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

Mótakrossviður, Interform, 9mm 125x250cm

Vörunúmer: int-itfd045090f
16.658 kr.m/vsk
Á lager

Mótakrossviður Interform 9mm frá International Plywood

Interform mótakrossviður er sterkur og höggþolinn birki krossviður með dökkbrúnni sléttri fenólhúð á báðum hliðum, 120gr/m2, límdur saman með fenóllími

Stærð: 125x250cm
Þykkt: 9mm
Fjöldi laga: 7
Litur: Brúnn

International Plywood – FSC vottorð


Timburvörur sem hafa FSC vottun koma úr sjálfbærum skógum. Með því að velja FSC vottaðar timburvörur tryggir þú að komandi kynslóðir geta notið skóga.

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Græn vara · krossviður
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Mótakrossviður frá International Plywood

Ath! Ef platan er söguð þarf að mála/grunna sárið með vatnsheldri málningu.

Almennt
Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Plötuefni þetta er mikið notað í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að harðari og mýkri viður skiptast á, en yfirleitt er krossviður framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðvið.
Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf 90° miðað við lagið á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman með hita og límd með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem verpist ekki eða minnkar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.
Krossviður er mikið notaður þar sem þörf er á léttu, sveigjanlegu byggingarefni sem auðvelt er að vinna hratt og auðvelt er að endurnýta. Hann er þannig notaður t.d. við bátasmíðar (með vatnsheldu lími) og leikmyndagerð, svo eitthvað sé nefnt.