DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Undri

Undri Garðahreinsir 1 ltr

Vörunúmer: und-1008-001u
1.795 kr.m/vsk
Á lager

Garðahreinsirinn frá Undra er vistvænt fjölnota hreinsiefni, sem nota má til að þrífa allflest það sem finnst í garðinum.

  • Óblandaður Garðahreinsir frá Undra drepur illgresi og gróður
  • Hreinsar garðpalla
  • Þrífur garðhúsgögn
  • Þrífur heita potta
  • Hreinsar sláttuvélar
  • Má nota til að hreinsa pensla
  • Hentar vel til að þrífa grill.

Garðahreinsirinn frá undra fjarlægir líka flugur og trjákvoðu af bílum og ferðavögnum.

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Garðahreinsir · Gerðu pallinn eins og nýjan · sumarbustaðurinn
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Garðahreinsirinn frá Undra

Garðahreinsirinn frá Undra er fjölnota hreinsiefni sem ætlað er í garðinn. Hann má nota til þrifa á allflestum yfirborðsflötum sem fyrirfinnast í garðinum, svo sem garðpöllum, garðhúsgögnum, heitum pottum, sláttuvélum, málningaráhöldum, penslum og grillum svo eitthvað sé nefnt. Einnig fjarlægir garðahreinsirinn frá Undra flugur og trjákvoðu af bílum og tjaldvögnum.

​1L pakkningin af Garðahreinsinum frá Undra kemur með þægilegum úðastút.

UNDRI Garðahreinsir – helstu kostir

Eitt fjölnota hreinsiefni til flestra hluta í garðinum.

Hreinsar,

  • garðinn
  • grillið
  • pallinn
  • pottinn
  • húsið
  • bílinn
  • sláttuvélar og sláttuorf

Umhverfisvænn

Garðahreinsirinn frá Undra er umhverfisvænn. Eftir 90 daga hafa gerlar étið UNDRA og er hann þá aftur kominn í eðlilega hringrás náttúrunnar.

​Verndum náttúruna

Garðahreinsirinn frá Undra inniheldur engin lífræn leysiefni né komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg náttúrunni. Undri garðahreinsir er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu 301B(OECD) Gerlar éta 90% af UNDRA á 45 dögum. Eftir 90 daga hafa þeir étið hann allan og er UNDRI þá aftur kominn í eðlilega hringrás náttúrunnar.

​Notkunarleiðbeiningar

  • Úðið UNDRA á flötinn sem hreinsa skal.
  • Dreifið með kústi eða svampi.
  • Látið efnið vinna í 3 til 10 mínútur.
  • Skolið vel af með vatni.

UNDRA má nota ýmist blandaðan vatni eða óblandaðan.

Virkni UNDRA eykst eftir því sem blandan er sterkari.

Óblandaður garðahreinsir drepur gróður. Garðahreinsirinn frá undra hentar því vel til að drepa gras og illgresi í og við sólpalla og á malarplönum. Eins hentar Garðahreinsirinn frá Undra vel til að drepa gróður sem vex í fúgum milli hellna. Athugið þó að Undri getur litað hellurnar aðeins. Gerið því prufu áður en Garðahreinsinum frá Undra er úðað yfir hellulagnir.

​Innihaldslýsing

Sojaprópýonat, vatn, alkóhóletoxýlat og própanól.

Hreinsivörur fyrir garðinn skoða [Hér]

Heimasíða Undra

Öryggisblö: [Smella hér]

Meira frá Undri

Allar Undri vörur