

Vagans 25 votrýmismálning 9 lítrar
Þvott- og rakaheld akrýlmálning frá Colorex. Hálfglansandi með góðri viðloðun.
Vagans 25 hentar vel sem málning inni á veggi og loft í þar sem mikið mæðir á. Vagans 25 hentar í eldhús, baðherbergi þvottahús, matvælavinnslu o.s.frv.
Málningin skilar góðum glans, er þægileg í þrifum og sveppafrí. Má málast á steypu, múr, gifsveggi, spónaplötur og áður málaða fleti.
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Vörulýsing
Undirbúningur:
Undirlagið þarf að vera þurrt, hreint og fast. Skrapið burt laus málningarlög. Slípið með sandpappír og þrífið eldri málaða fleti. Eldri alkydmálningu þarf að slípa matta með sandpappír fyrir málun. Ef málað er yfir glertrefjanet þarf að ganga úr skugga um að lím og spart sem var notað sé ætlað til notkunar í votrými.
Ásetning:
Málið 1-2 umferðir þar til fullnægjandi þekja næst. Þegar málað er yfir glertrefjanet þarf að fara minnst 3 umferðir.
Hættu- og varnaðarsetningar:
Skaðlegt vatnalífverum, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni. Skilið efni og umbúðum á móttökustöð fyrir spilliefni.
Hér getur þú skoðað vinsæla liti frá Colorex

Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Inni
Glans: 25%
Þynnist með: Vatni
Þekja: 6-8m2/ltr
Snertiþurrt: 60 min
Yfirmálun eftir: 2-4 tímar
Vinnsluhitastig: Min +5°C
Verkfæri: Pensill, rúlla eða sprauta







