DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

COPPEROL VIÐARVÖRN 3l

Vörunúmer: copperol
4.799 kr.m/vsk
Á lager

Copperol er viðarvörn sem smýgur langt inn í viðinn. Viðarvörnin verndar timbur sem er í miklum raka eða bleytu, um leið hindrar olían myndun á þörungum og myglu. Copperol hentar t.d. vel á bjálka sem eru notaðir í blómabeð. Coperol er dökkbrún að lit.

Copperol er alkýðstyrkt viðarvörn í háum gæðaflokki sem smýgur djúpt í viðinn og veitir framúrskarandi vatnsfráhrindandi yfirborðsvernd.

Ef þú ert að leita að alvöru pallaolíu sem endist kíktu þá á úrvalið [hér]

Copperol – Tækniblað

 

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Besta pallaolían · Besta pallaolían og viðarvörn · Málum úti · sumarbustaðurinn
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Copperol viðarvörnin smýgur vel inn í viðinn og hentar mjög vel til að bera á timbur sem er í miklum raka. Einnig ver hún timbrið gegn myndun þörunga og myglu.

Notkunarleiðbeiningar:

Hreinsið útfellingar með stífum bursta og hreinsið allt laust efni af pallinum.

Timbrið þarf að vera alveg þurrt og hreint. Fúnað eða myglað timbur þarf að fjarlægja. Berið á með pensli, svampi eða tusku og hugið að því að bera vel upp á timburenda. Gefið efninu tíma til þess að smjúga inn í timbrið.

Verkfæri skal hreins með terpentínu.

Varúð!

Tuskur með olíu í geta valdið sjálfsíkveikju og því mikilvægt að hreinsa þær vel eða farga þeim.

Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Úti
Þynnist með: Terpentínu
Efnisþörf: 4-12m2/L
Yfirmálun: 5-6 klst
Vinnsluhitastig: Min +5°C
Verkfæri: Pensill, svampur eða tuska