DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Colorex

Colorex Steypugrunnur, 1L

Vörunúmer: col-19190103
1.629 kr.m/vsk
Á lager

Glær vatnsþynnanlegur grunnur á múr og steypu utandyra.

Colorex steypugrunnur er hágæðaútigrunnur á stein, múr, kalk og gifsveggi. Hentar einnig mjög vel inni þar sem hætta er á raka. Grunnurinn hentar einnig til að rykbinda steypt gólf og sem viðloðunargrunnur fyrir gólfmálningu

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Málum steinsteypu
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Colorex steypugrunnur er hágæðaútigrunnur á stein, múr, kalk og gifsveggi. Hentar einnig mjög vel inni þar sem hætta er á raka. Grunnurinn hentar einnig til að rykbinda steypt gólf og sem viðloðunargrunnur fyrir gólfmálningu. Colorex Steypugrunnur er hluti af útimálningarkerfi ásamt Colorex útimálningu. Saman mynda þessi tvö efni kerfi sem er vatnsverjandi en er jafnframt gufuopið og andar raka út úr múrnum.

Undirbúningur:
Undirlagið þarf að vera þurrt, hreint og fast. Burstið eða skrapið burt öllum lausum múr, málningarflögum, gróðri o.sv.frv. Áður málaða fleti þarf að þvo og skola vel með vatni. Verjið glugga og gler þar sem Colorex Steypugrunnur getur virkað ætandi á gler.

Ásetning:
Berið Colorex Steypugrunn á með úðakút, rúllu eða pensli. Efnið er snertiþurrt á 1-2 klst. Og má yfirmála eftir ca. 2-4 klst. en fer þó eftir hita og rakastigi.

Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Úti
Glans: Fer eftir gleypni undirlags
Þynnist með: Vatni
Þekja: 4-8 m2 pr. ltr.
Snertiþurrt: 1-2 klst.
Yfirmálun eftir: 2-4 klst.
Vinnsluhitastig: Min +8°C
Verkfæri: Pensill, rúlla eða sprauta

Meira frá Colorex

Allar Colorex vörur