DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

CREATIVE SUPER SEAL STEYPUGLJÁI Á STÉTT – 5L

Vörunúmer: crea-seal5
13.995 kr.m/vsk
Á lager

Superseal bæklingur

Superseal msds

Steypugljái verndar yfirborð skreyttrar áferðar í steypu og hellulögnum. Fyrirbyggjandi gegn þörunga- og mosavexti.

Superseal steypugljái er frá Creative Impressions

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Steypugljái · sumarbustaðurinn · Sumarið er núna · Vorið er komið
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Superseal steypugljái verndar yfirborð skreyttrar áferðar í steypu og hellulögnum. Fyrirbyggjandi gegn þörunga- og mosavexti.
Myndar sterkt lag af akríl, sem gulnar ekki og verndar yfirborðið fyrir olíu og flestum efnaleka.
Auðvelt að bera á með úðara, bursta eða rúllu og efnið þornar fljótt og myndar harðan varanlegan gljáa.
Superseal steypugljái er frá Creative Impressions.

Undirbúningur
Borið á nýja steypu/hellur:
Yfirborðið þarf að vera hreint, án steypuslamma og alveg þurrt.
Borið á aðra fleti úr steypu:
Yfirborð skal háþrýstiþvegið til að fjarlægja steypuslamma , fjarlægja þarf olíubletti með SP10.

Notkun
Steypan þarf að vera alveg þurr áður en borið er á, ef borið er á blauta steypu verður lagið hvítt.
Þegar efsta lagið er borið á má bæta við Maxi grip efni til að yfirborð verði ekki eins sleipt. Þegar efsta lagið er borið á verður lágmarkshitastig að vera 10°C. Hiti skal ekki fara niður fyrir 5°C á þurrktímanum. Hámarkshitastig ætti ekki að fara yfir 35°C þegar efnið er borið á.
Berið ekki á rakt yfirborð eða þegar mikill raki er í lofti.
Til að bera á má nota úðara, rúllu eða mjúkan kúst. Leyfið efninu að þorna í 4-5 klst áður en gengið er á yfirborðinu og 72 klst áður en keyrt er á því.

Efnisnotkun: 3-5m2 á L, fer eftir ídrægni yfirborðs og aðferð við ásetningu.

Öryggiskröfur: Notið viðeigandi öryggisfatnað, s.s. hanska, grímu og gleraugu. Sjá öryggisblað.
Efnið inniheldur leysiefni og ætti eingöngu að vera notað á vel loftræstum svæðum. Nota skal andlitsgrímu. Má ekki nota nálægt opnum eldi/loga eða neistaflugi. Bannað að reykja. Úðunartæki verða að vera eldvarin og rétt jarðtengd.

Tengdar vörur

Sjá allt í Sealer