DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

SUPER SEAL GRUNNUR / PRIMER Á STÉTT – 25L

Vörunúmer: crea-seal1
29.995 kr.m/vsk
Á lager

Superseal grunnur

Á ný plön þá er mælt með því að í fyrstu umferð sé notaður Superseal grunnur. Grunnurinn bindur sig við steypuna og tryggir þannig betri árangur og viðloðun Superseal sealers.

Hægt er að bera Superseal grunninn á með pensli, rúllu, múkum kústi eða úðara.

Byrja þarf á að þrífa flötinn vel með t.d. með háþrýstidælu. Hreinsa þarf allan steypuslamma og litarefnisleyfar. Ef það eru olíublettir á fletinum þá þarf að hreinsa þá með þar til gerðum efnum.

Yfirborðið þarf að vera hreint, laust við allan steypuslamma og litarefnisleyfar.

Mikilvægt er að steypan sé alveg þurr áður en efnið er borið á. Berið ekki á rakt yfirborð eða ef loftraki er mikill.

Berið eina umferð af Superseal grunni á planið og leyfið að þorna. Það tekur grunninn 2-3 klukkustundir að þorna við 10° lofthita.

Hitastig má ekki fara niðurfyrir 5° á þurrktímanum. Varist að bera efnið á í mikilli sól. Hiti á fletinum ætti ekki að fara yfir 35° þegar efnið er borið á.

Berið því næst eina umferð af Creative Superseal Steypugljáa á planið. Þegar síðasta umferðin af Supersel Steypugljáanum er borin á ætti hitastig að vera 10° eða hærra.

Efnisnotkun: 3-5m2 á L, fer eftir hversu mynstrið í steypunni er gróft, ídrægni yfirborðs og aðferð við ásetningu.

Öryggiskröfur: Notið viðeigandi öryggisfatnað, s.s. hanska, grímu og gleraugu

Efnið inniheldur leysiefni og ætti eingöngu að vera notað á vel loftræstum svæðum. Nota skal andlitsgrímu. Má ekki nota nálægt opnum eldi/loga eða neistaflugi. Bannað að reykja. Úðunartæki verða að vera eldvarin og rétt jarðtengd.

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Besta planið · Steypugljái · sumarbustaðurinn
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Superseal grunnur fyrir ný steypt plön

Superseal grunnurinn frá Creative Impressions bindur sig sérstaklega vel við steypu og tryggir þannig að Superseal sealerinn festist vel og endist lengur.

Byrjað er að bera eina umferð af Superseal grunni á planið eða steypta flötin sem á að meðhöndla. Grunnurinn er látinn þorna og síðan er borin á ein eða tvær umferðir af Superseal steypugljáa.

Efnisnotkun: 1L dugar á 3-5m2

Tengdar vörur

Sjá allt í Sealer