

COPPEROL VIÐARVÖRN – BRÚN
Copperol er viðarvörn sem smýgur langt inn í viðinn. Viðarvörnin verndar timbur sem er í miklum raka eða bleytu, um leið hindrar olían myndun á þörungum og myglu
Copperol er alkýðstyrkt viðarvörn í háum gæðaflokki sem smýgur djúpt í viðinn og veitir framúrskarandi vatnsfráhrindandi yfirborðsvernd.
Copperol er til í 1 lítra og 3 lítra dósum.
Veldu hér fyrir neðan
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Vörulýsing
Copperol viðarvörnin smýgur vel inn í viðinn og hentar mjög vel til að bera á timbur sem er í miklum raka. Einnig ver hún timbrið gegn myndun þörunga og myglu.
Notkunarleiðbeiningar:
Hreinsið útfellingar með stífum bursta og hreinsið allt laust efni af pallinum.
Timbrið þarf að vera alveg þurrt og hreint. Fúnað eða myglað timbur þarf að fjarlægja. Berið á með pensli, svampi eða tusku og hugið að því að bera vel upp á timburenda. Gefið efninu tíma til þess að smjúga inn í timbrið.
Verkfæri skal hreins með terpentínu.
Varúð!
Tuskur með olíu í geta valdið sjálfsíkveikju og því mikilvægt að hreinsa þær vel eða farga þeim.
Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Úti
Þynnist með: Terpentínu
Efnisþörf: 4-12m2/L
Yfirmálun: 5-6 klst
Vinnsluhitastig: Min +5°C
Verkfæri: Pensill, svampur eða tuska






