DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!

PREMIUM PALLAOLÍA CLASSIC – 3L

Vörunúmer: col-40262
4.997 kr.m/vsk
Á lager

Hagmans Premium pallaolía er gagnsæ ljós tré olía sem hentar mjög vel á pallinn. Premium pallaolía hentar mjög vel til að bera á gagnfúavarið timbur sem og ófúavarið timbur. Eins skilar hún sérstaklega góðum árangri þegar hún er notuð til að fríska uppá sólpalla sem borið hefur verið á áður, Preimum pallaolían ver timbrið fyrir áhrifum sólarljóss, kemur í veg fyrir að það springi og hrindir mjög vel frá sér vatni.

Hentar á sólpalla, girðingar og húsgögn.

Alkýðstyrkt tréolía í háum gæðaflokki sem smýgur djúpt í viðinn og veitir framúrskarandi vatnsfráhrindandi yfirborðsvernd. Styrkir og ver gegn sprungumyndum og fúga..

Litarlaus og tær olía. Gerð úr hörfræjum og alkýð. Hægt að fá litaða.

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Allt fyrir pallinn · Besta pallaolían · Besta pallaolían og viðarvörn · Júní tilboð 2026
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Premium pallaolía hentar mjög vel til að bera á gagnfúavarið timbur sem og ófúavarið timbur. Eins skilar hún sérstaklega góðum árangri þegar hún er notuð til að fríska uppá sólpalla sem borið hefur verið á áður. Premium pallaolíian ver timbrið fyrir áhrifum sólarljós. Hún er vantsfráhrindandi og kemur í veg fyrir að timbrið í pallinum springi. Eins dregur Premium pallaolía úr vexti óæskilegs gróðurs í timbrinu. Hagmans Premium pallaolían kemur tilbúin til notkunar. Hægt er að fá hana blandaða í mörgum litum. Lituð pallaolía dregur úr líkum á því að timbrið gráni.

Notkunarleiðbeiningar:

Nýtt gagnfúavarið timbur: Leyfið timbrinu að jafna sig í 1-2 mánuði. Hreinsið útfellingar með stífum bursta og hreinsið allt laust efni af pallinum.

Gagnfúavarið timbur sem borið hefur verið á áður: Fjarlægið gráma með stálbursta að sandpappír. Gott er að nota pallahreinsi til að hreinsa pallinn vel áður en Hagmans Premium pallaolían er borin á.

Timbrið þarf að vera alveg þurrt og hreint. Fúnað eða myglað timbur þarf að fjarlægja.  Berið Premium pallaolíuna á með pensli, svamipi eða tusku. Olían á að smjúga inn í timbrið án þess að yfirborðslag myndist. Gljáandi blettir á kvistum og olíu sem timbrið drekkur ekki í sig á að þurrka af með tusku (hafa tusku raka af terpentínu). Endurtakið meðferð nokkrum sinnum á ári, sérstaklega fyrir haustið. Muna að bera vel upp á timburenda.

Verkfæri skal hreins með terpentínu.

Varúð!

Tuskur með olíu í geta valdið sjálfsíkveikju og því mikilvægt að hreinsa þær vel eða farga þeim.

Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Úti
Þynnist með: Terpentínu
Efnisþörf: 4-8m2/L sagað timbur, 7-12m2/L mótað timbur
Þurrktími: 48-72 klst (fer eftir hita- og rakastigi)
Yfirmálun: 24 klst
Vinnsluhitastig: Min +5°C
Verkfæri: Pensill, svampur eða tuska