DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Hagmans

Pallahreinsir – Hagmans Tralltvatt – 4 lítrar

Vörunúmer: col-32022
3.565 kr.m/vsk
Á lager

Öflugur pallahreinsir sem fjarlægir gamla pallaolíu og önnur óhreinindi af pallinum. Hagmans pallahreinsirinn er sterkt hreinsiefni fyrir palla sem hreinsar pallinn bæði hratt og vel.

Pallahreinsirinn hreinsar í burt þörunga, drullu og leifar af gamalli viðarolíu.

Notkun:
Byrjað er á því að bleyta pallinn með vatni. Berið Hagmans Tralltvätt pallhreinsinn á. Bíðið í um 10 mínútur og leyfið efninu að vinna, án þess að láta pallinn þorna. Skolið svo pallahreinsinn af með miklu vatni eða háþrýstidælu.
Efnisnotkun: Notað óþynnt um 10 m2 /L
1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Allt fyrir pallinn · Besta pallaolían og viðarvörn · Garðahreinsir · Gleðilegt sumar
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Öflugur pallahreinsir

Hagmans Tralltvätt pallahreinsir er pallahreinsir sem léttir þér vinnuna við að halda pallinum þínum fallegum. Viður verður sífellt fyrir álagi og óhreinindum og gömul pallaolía getur safnast upp. Eins geta þörungar sett græna slikju á pallinn. Því þarf að hreinsa hann reglulega, helst árlega, til að varðveita yfirborð og áferð. Pallahreinsirinn frá Hagmans er sérstaklega góður til að hreinsa gamla pallaolíu af pöllum og til að losna við mislita flekki af pallinum og hreinsa öll óhreinindi í burtu.
Pallahreinsirinn frá Hagmans er mjög öflugur og varast þarf að hann berist á málma og gler. Lesið leiðbeiningar fyrir notkun.
Til að bestur árangur náist, mælum við með að bera pallinn með pallaolíu frá Hagmans eða Colorex sjá nánar [hér]
Notkun:
Byrjað er á því að bleyta pallinn með vatni. Berið Hagmans Tralltvätt pallahreinsinn á. Bíðið í um 10 mínútur og leyfið efninu að vinna, án þess að láta pallinn þorna. Skolið svo pallahreinsinn af með miklu vatnir eða háþrýstidælu.
Það er tilvalið að þrífa pallinn með Hagmans pallahreinsi þegar rignir. Þá er pallurinn blautur og einungis þarf að bera pallahreinsinn á og leyfa honum að standa í 10-15 mínútur. Hagmans pallhreinsirinn er mjög öflugur, þannig að ef pallurinn er ekki þeim mun óhreinni, þá þarf ekki endilega að skrúbba áður en pallahreinsirinn er skolaður af.
Best er að nota háþrýstidælu með pallabursta til að þrífa pallahreinsinn af og hreinsa pallinn. Það er bæði fljótlegt og minnkar líkur á því að skemma viðinn.
Pallahreinsirinn getur tært gler og ál og því er gott að verja þau efni áður en efnið er borið á pallinn. Passið einnig að pallahreinsirinn berist ekki á timbur grindverk því hann getur leyst upp gamla viðarvörn á þeim.
Heimasíða framleiðanda: Hagmans.se

 

 

Meira frá Hagmans

Allar Hagmans vörur