DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Colorex

COLOREX GRUNNOLÍA – 3 LÍTRAR

Vörunúmer: col-14990302
4.619 kr.m/vsk
Á lager

Colorex Grunnolía er byggð á kínverskri tréolíu. Efnið má nota á allt timbur, bæði þegar málað er í fyrsta sinn eða endurmálað. Colorex Grunnolían gengur djúpt inn í viðinn og vinnur á móti sprungum og þurrki. Colorex Grunnolía ásamt Útigrunn og þekjandi viðarvörn, mynda einstaklega þolið yfirborð og langtímavörn gegn veðri, raka, þurrki o.s.frv.

Glær grunnolía.

Grunnolía classic – Tækniblað

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Sumargleði
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Undirbúningur:
Undirlagið þarf að vera þurrt, hreint og fast. Skrapið eða slípið yfirborðið. Hreinsið burt gamla lausa málningu og allan lausan, sprunginn eða brotinn við.

Ásetning:
Viðurinn verður að vera alveg þurr. Viðurinn þarf að gleypa í sig olíuna þar til hann mettast. Berið á með pensli. Þegar viðurinn hættir að taka við olíunni þarf að þurrka umframolíu af því olían á ekki að mynda filmu. Af olíublautum tuskum stafar íkveikjuhætta. Því þarf að farga þeim á öruggan hátt.

Tæknilegar upplýsingar:
Notkunarsvæði: Úti
Glans: Fer eftir mettun
Þynnist með: Terpentínu
Efnisþörf: 4-8m2/ltr
Þurrktími: 60 mín
Yfirmálun: 6 klst
Vinnsluhitastig: Min +5°C
Verkfæri: Pensill

Meira frá Colorex

Allar Colorex vörur