

Murexin Repol VM-30 þanm >30mm 25kg
Murexin VM 30 þansteypa / samsteypa sem flæðir mjög vel, hefur mikinn endastyrk og má nota inni sem úti. VM 30 þansteypa hentar mjög vel í að steypa undir vélar og tækjabúnað, stálbita. Eins hentar VM 30 þanmúr vel í stærri viðgerðir á gólfum sem eiga að þola mikla umferð.
Murexin VM 30 þansteypa er frostþolin og má nota inni sem úti. Þrýstistyrkur 55MPa eftir 7 daga og 60MPa eftir 28daga
Murexin VM 30 – Öryggisblað
Murexin VM 30 – Tækniblað
Murexin VM 30 – EPD
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
- samsteypa · viðgerðarblanda · þansteypa
Vörulýsing
Murexin VM 30 þansteypu má nota inni sem úti
Helstu eiginleikar:
- Hraðharnandi
- Flæðir/rennur mjög vel
- Lítið ryk þegar blandan er hrærð
- Dregst lítið saman við hörnun
- Frostþolin
- Hægt að nota í miklum þykktum, 4-150mm og allt uppí 300mm (sjá tækniblað)
- Mikill endastyrkur. Þrýstistyrkur eftir: 1d = 30MPa, 3d = 50MPa, 7d = 55MPa, 28d = 60MPa
- Uppfyllir EN1504-6
VM30 þansteypa er sementsbundin, veður- og frostþolin þansteypa sem rennur vel og hefur mikinn styrk. VM 30 dregst mjög lítið saman við þornun og hentar því vel fyrir viðgerðir á gólfum, undir vélasamstæður, undir undirstöður s.s. undirstöður fyrir krana og til að þétta milli byggingarhluta. Erlendis er VM 30 notuð undir járnbrautateina.
Lítið ryk myndast þegar unnið er með VM 30 í samanburði við mörg önnur sementsbundin efni. Vinnslusvið er 4-150mm.
Vinnuleiðbeiningar
Blandið VM 30 með hrærivél sem snýst hægt. Blandið 3,5l af vatni í 25kg af VM 30 og hrærið þar til blandan er orðin jöfn. Blöndunartími er um 3-4 mínútur. Aldrei nota meira vatn en leyfilegt er. Áður en blandan er notuð bíðið í c.a. 5 mínútur meðan hún tekur sig.
Vinnið blönduna hratt. Blanda sem tekin er að harðna má ekki þynna með vatni.
Gætið þess að VM 30 harðni ekki of hratt t.d. með því að verja hana með plasti.
Vinnsluhiti: +5°-+30°C – gætið þess að hiti fari ekki undir 5° meðan blandan er að harðna.
Sjá nánar: Murexin VM 30 tækniblað
Tengdar vörur
Sjá allt í Múrefni














