DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

Weber Milligróf Múrblanda 18kg

Vörunúmer: WEB-5200954460
2.549 kr.m/vsk
Á lager

Milligróf Múrblanda – Tækniblað
Milligróf Múrblanda – Öryggisblað

Weber Milligróf múrblanda er alhliða múrblanda sem þarf einungis að blanda með köldu vatni og er þá tilbúin til notkunar. Hentar í allar almennar múrviðgerðir úti sem inni. Slitsterkt, sementsbundið steypu og múrviðgerðarefni, með mjög góða viðloðun. Frostþolið og vatnsþétt þegar fullri hörku er náð.

Vörumynd er af 25kg poka en varan er seld í 18kg poka

ATH. 5% PALLA AFSLÁTTUR

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • steypa · Viðgerðarefni
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Milligróf Múrblanda

Weber Milligróf múrblanda er alhliða milligróf múrblanda sem einungis þarf að blanda með köldu vatni og er þá tilbúin til notkunar. Hentar í allar almennar múrviðgerðir úti sem inni.

Notkunarsvið

Sem pússning á sökkla og aðra fleti sem þurfa mikinn styrk og góða veðrunarvörn s.s. veggjum, tröppum og svalahandriðum. Hentar vel í allar viðgerðir, úti og inni, sem ekki þarf að setja í miklar þykktir þ.e. <=10mm.

Ef gera þarf við meiri þykktir notið þá Weber Grófa múrblöndu.

Eiginleikar

Weber Milligróf múrblanda er slitsterkt, sementsbundið steypu og múrviðgerðarefni, með mjög góða viðloðun. Milligróf múrblanda er frostþolin og vatnsþétt þegar fullri hörku er náð

Undirbúningur

Flöturinn skal vera hreinn og laus við lausan múr, sementslamma, raka, fitu og önnur óhreinindi sem komið geta í veg fyrir góða viðloðun.

Höggvið og hreinsið burt allan lausan og skemmdan múr og/eða klæðningar eftir þörfum. Best er að nota hamar og meitil og bursta síðan svæðið vel með mjög stífum bursta.

Ef skemmdin nær inn í járn skal fjarlægja alla lausa steypu frá járninu og hreinsa járnið með sandblásara eða slípirokk. Berið síðan á járnið sementsbundið ryðvarnarefni t.d. Murexin Repol BS 7

Til að tryggja viðloðun, sérstaklega við gamalt og gleypið undirlag er best að kústa sárið með slamma. Hrærið saman vatni og Milligrófri múrblöndu, þangað til að til verður blautur kústunarhæfur slammi. Kústið síðan slammanum vandlega í sárið og leggið nýju múrblönduna í blautt sárið. Nýjan múr er gott að bleyta vandlega fyrir viðgerð. Einnig er hægt að nota grunn til að auka bindingu við eldri steypu.

Mjög rakadrægt undirlag þarf að bleyta vel daginn áður en hafist er handa.

Hitastig þarf að vera amk. 5° í 12 tíma eftir verklok.

Blöndun

Hrærið Milligrófri múrblöndu saman við kalt hreint vatn, þar til réttri seiglu og þjálni er náð. Notið þó ekki meira en 2,16l af vatni í 18kg poka. Meginreglan er, því minna vatn, þeim mun sterkari múrblanda.

Smærri skammta má blanda í höndum, en stærri skammta þarf að hræra í góðum múrbala með hæggengri bor- eða múrhrærivél og hræripinna sem er ætlaður til að blanda múrefni. Mikilvægt er að hræra efni þar til það er kekkjalaust og réttri þjálni náð, c.a. 2-3 mínútur. Hrærið ekki meira í einu en næsta að nota á um 60 mínútum.

Framkvæmd

Leggið múrblönduna alltaf í blautt, hvort sem sárið er vætt með vatni eða kústað með slamma.

Viðgerðir:

Notið múrskeið, múrbretti eða pússbretti til að smyrja múrblöndunni í sárið. Hafið lagið aðeins of þykkt. Þegar múrinn er orðinn snertiþurr er þrýst vel á yfirborðið og filtað yfir með pússbretti í stuttum hringlaga hreyfingum þar til áferðinni sem óskað er eftir er náð.

Pússning á sökklum

Kastið blautri múrblöndu á sökkulinn í c.a. 3mm þykku lagi. Leyfið efninu að þorna til næsta dags. Dragðið þá c.a. 10mm þykkt lag á sökkulinn. Réttið af með réttskeið. Þegar múrinn er orðinn snertiþurr er hann pússaður með pússbretti í stuttum hringlaga hreyfingum þar áferðinni sem óskað er eftir er náð.

Frágangur á hornum

Notið réttskeiðar til að taka hornin rétt. Framkvæmið ákast og pússningu eins og lýst er hér að ofan. Fjarlægðið réttskeiðarnar með ýtrustu varkárni þegar pússnigu er lokið.

Eftirmeðhöndlun

Til að koma í veg fyrir of hraða þornun, þarf annað hvort að breiða plast yfir flötin eða viðhalda raka með því að vökva hann í nokkra daga eftir lögn. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef það er þurrt verður og vindur.

Gátlisti

Verkfæri

  • Hamar
  • Meitill
  • Kústur / handsópur
  • Múrfata eða múrbali til að blanda í
  • Fata með vatni
  • Hræripinni fyrir múrblöndur
  • Borvél / Múrhrærivél
  • Múrskeið
  • Pússbretti
  • Múrbretti
  • Glattari
  • Kalkkústur
  • Réttskeið
  • Byggingaplast til að breiða yfir

Gott ráð

Hreinsið verkfæri strax að verki loknu.

Efnisnotkun

Um 2 kg/m2 fyrir hvern millimeter af þykkt.

Hörðnun

Hörnun byrjar eftir 2 – 4 klst. Full hörðnun: 28 dagar

Við eigum til úrval múrefna – Sjáðu hér

Þú færð gæða múrvörur í Múrbúðinni

Tengdar vörur

Sjá allt í Múrefni

Meira frá Weber

Allar Weber vörur