DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

WEBER FLOOR 4160 FINE FLOW RAPID (25KG) – Hraðharðnandi flot

Vörunúmer: web-2257552
5.963 kr.m/vsk
Á lager

Weber 4160 Fine Flow Rapid er dælanlegt, hraðharðnandi flotefni sem er auðvelt í meðförum – inni þunnflot. Hentar í íbúðarhúsnæði, á skrifstofum, iðnaðargólfum, og hvarvetna sem gerðar eru kröfur um mikinn styrk og stuttan vinnslutíma. Ekki er þörf á frekari yfirborðsmeðhöndlun, svo sem slípun eða fínspörtlun. Efnið er þurrefni í 25kg pokum sem er blandað vatni á byggingarstað. Stuttur þurrktími leyfir lögn á dúk eða parketi eftir 12- 24 klst. Flísar má leggja með sementsbundnum límum daginn eftir flotun.

Weber 4160 Fine Flow – Öryggisblað
Weber 4160 Fine Flow – Tækniblað
Weber 4160 Fine Flow – Environmental product declaration
Weber 4160 Fine Flow – DOP

ATH. 5% PALLA AFSLÁTTUR

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Air Comfort Gold · Bestu flotefnin · Flotefni · Græn vara
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Weber 4160 Fine Flow Rapid er dælanlegt, hraðharðnandi flotefni sem er auðvelt í meðförum – inni þunnflot, sem er sterkt undirlag undir flest gólfefni eða til lökkunar. Ekki er þörf á frekari yfirborðsmeðhöndlun, svo sem slípun eða fínspörtlun.

Efnislýsing

Weber 4160 Fine Flow Rapid er dælanlegt, hraðharðnandi flotefni sem er auðvelt í meðförum. Ekki er þörf á frekari yfirborðsmeðhöndlun, svo sem slípun eða fínspörtlun. Efnið er þurrefni í 25kg pokum sem er blandað vatni á byggingarstað. Stuttur þurrktími leyfir lögn á dúk eða parketi eftir 12- 24 klst.( Fer eftir þykkt, loftraka, hitastigi, rakastigi undirlags og öðrum aðstæðum.) Flísar má leggja með sementsbundnum límum daginn eftir flotun. Weber 4160 er vottað af óháðum aðila sem er SP Sveriges Forsknings och Provningsinstitut, P og CE merkt og uppfyllir kröfur HusAMA um flotefni. Weber 4160 má nota í Svansvottaðar byggingar.

Notkunarsvið

Weber 4160 hentar í íbúðarhúsnæði, á skrifstofum, iðnaðargólfum, og hvarvetna sem gerðar eru kröfur um mikinn styrk og stuttan vinnslutíma. Þykktarsvið er 2-30mm. Endastyrkur eftir 28 daga er 35MPa

Undirvinna

Undirlagið skal vera hreint og laust við lausan múr, sementslamma, raka, fitu og önnur óhreinindi, og þarf að þola togkraft allt að 1,0 MPa. Ef flota á yfir lakkað gólf, skal slípað yfir með sandpappírs-slípivél og lakkið mattað. Grunnið með Weber Floor 4716 1:1, stráið þurru efni í blautan grunninn og kústið saman. Látið þorna og þá er undirlagið tilbúið undir flotun.

Grunnur

Grunna skal með Weber Floor 4716 og blanda hann 1 hluti grunnur og 3 hlutar vatn. Sjá nánari leiðbeiningar.

Blöndun og lögn

Vatnsmagn er 21% eða 5,25 lítrar í 25 kg. poka. Blandið saman með hæggengri borvél þar til viðunandi seigju er náð. Ef dæla á efninu, leitið þá upplýsinga hjá söluaðila. Mælið flotið í efninu (samkv. SS 923519) með hring sem er 50x22mm. Skal þá flotið í efninu vera 155-165mm. Athugið alltaf við flotprufu hvort efnið sé nægjanlega vel hrært.

Ásetning

Flotinu er dælt með þar til gerðri múr/flotdælu. Efnið er lagt í þunnu lagi fram og til baka eftir gólfinu. Hámarksbreidd á svæði er 8m. Á breiðari svæðum þarf að skilja að með svamplista. Draga þarf tenntan spaða eftir yfirborðinu til að losa um loft og koma í veg fyrir loftbólur. Ef þarf að flota í tveimur umferðum, þurfa að líða ca 12klst á milli umferða

Varan er samþykkt vara í SCDP (Supply Chain Declaration Portal Svansins)í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).

Tengdar vörur

Sjá allt í Flot

Meira frá Weber

Allar Weber vörur