DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

WEBER FLOOR 4630 DUROLIT (25KG) – Hraðharðnandi – Útiflot

Vörunúmer: WEB-2257527
7.899 kr.m/vsk
Á lager

Weber 4630 er hraðharðnandi útiflot & inniflot sem er ætlað til flotunar á m.a. iðnaðargólfum þar sem kröfur eru gerðar um mjög háan slag-og slitstyrk. Einnig hentar efnið mjög vel á bílskúra, svalir, verandir, og aðra staði þar sem mikið mæðir á undirlaginu. Efnið má nota úti sem inni. Ekki er þörf á frekari yfirborðs-meðhöndlun eftir lögn, svo sem slípun eða fínspörltun. hefur háan þrýstistyrk, þolir vel frost, jafnvel í söltu umhverfi.

Weber 4630 – Öryggisblað
Weber 4630 – Tækniblað
Weber 4630 – DOP
Weber 4630 – Environmental product declaration

ATH. 5% PALLA AFSLÁTTUR

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Air Comfort Gold · Bestu flotefnin · Flotefni · Græn vara
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Útiflot frá Weber

Þykktarsvið 7-20mm (8-15mm algengast). Vatn i 25 kg. poka er 3,8L. Göngufært eftir 2-4klst. Fullþurt eftir ca 7 daga. Efnisþörf er 1,9kg á fermeter miðað við 1mm þykkt.

Notkunarsvið
Weber 4630 er hraðharðnandi úti/inni flot sem er ætlað til flotunar á iðnaðargólfum þar sem kröfur eru gerðar um mjög háan slag-og slitstyrk. Einnig hentar efnið mjög vel á bílskúra, svalir, verandir, og aðra staði þar sem mikið mæðir á undirlaginu. Efnið má nota úti sem inni. Efnið hefur háan þrýstistyrk, þolir vel frost, jafnvel í söltu umhverfi. Sérstakt sement og mjög hörð fylliefni gefa 4630 þessa frábæru eiginleika.
Kostir
Weber 4630 er dælanlegt hraðharðnandi flotefni sem er auðvelt í notkun. Ekki er þörf á frekari yfirborðs-meðhöndlun eftir lögn, svo sem slípun eða fínspörltun. Weber 4630 er vottað af óháðum aðila sem er SP Sveriges Forsknings och Provningsinstitut, P og CE merkt og uppfyllir kröfur HusAMA um flotefni.
Þykktarsvið
Efnið er venjulega lagt í 8 – 15 mm þykkt, en þykktarsviðið er 7-20mm. Við meiri þykktir er mælt með að nota 4630 sem undirlag.
Undirvinna
Undirlagið skal vera hreint og laust við lausan múr, sementsslamma, raka, fitu og önnur óhreinindi sem komið geta í veg fyrir góða viðloðun. Ef flota þarf yfir lakkað gólf, skal slípað yfir með sandpappirslípivél og lakkið mattað. Grunnið síðan með MD-16 1:1 og stráið þurru efni í blautan grunnin og kústið saman. Látið síðan þorna og er þá undirlagið tilbúið undir flotun.
Grunnur
Grunna skal með Weber Floor 4716 í tveim umferðum. Fyrst 1 hluti grunnur á móti 5 hlutum vatni, síðan 1 hluti grunnur og 3 hlutar vatn í seinni umferð.
Blöndun og lögn
Vatnsmagn er 3,8 lítrar í 25 kg. poka.Blandið saman með hæggengri borvél. Ef dæla á efninu, leitið þá upplýsinga hjá söluaðila. Mælið flotið í efninu (samkv. SS 923519) með hring sem er 50x22mm. Athugið einnig við flotprufu hvort efnið sé nægjanlega vel hrært saman. Gott er að draga úr efninu með tenntum spaða, til að losa loft úr efninu eða rúlla yfir með gaddarúllu.
Ekki má leggja efnið ef hitastigið fer niður fyrir 5°C næstu 12-24klst.

Varan er samþykkt vara í SCDP (Supply Chain Declaration Portal Svansins)í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).

Tengdar vörur

Sjá allt í Flot

Meira frá Weber

Allar Weber vörur