

Weber Gróf Múrblanda Grov Beton 18 kg
Öryggisblað – Gróf Múrblanda
Tækniblað – Gróf Múrblanda
Weber Gróf múrblanda er alhliða gróf múrblanda ætluð í grófari viðgerðir, nýsteypu, sem staurasteypa o.s.frv. Einungis þarf að blanda köldu vatni samanvið og er múrblandan þá tilbúin til notkunar. Slitsterkt, sementsbundið steypu- og múrviðgerðarefni, með mjög góða viðloðun. Frostþolið og vatnsþétt þegar fullri hörku er náð.
ATH. 5% PALLA AFSLÁTTUR
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
- steypa · Viðgerðarefni
Vörulýsing
Efnisþörf er ca 20kg á ferm. m.v. 10mm. Þykktarsvið er 10-40mm. Umbúðir: 18kg poki. Vatnsþörf í 18kg poka er ca 2,4L
Þykktarsvið
Undirvinna
Blöndun og lögn
Setjið 1 poka af múrblöndu (18kg) út í 2,4L af vatni. Hrærið vel með hæggengri borvél í 2-3 mín eða þar til blandan er orðin kekkjalaus.Gólf: Leggið út lárétta leiðara með ca 1m millibili. Leggið múrblönduna út í a.m.k. 2cm lagi og afréttið með réttskeið m.v. leiðarana. Þegar yfirborðið er orðið snertiþurrt má vinna í því með glattara, pússbretti eða þ.h. Hitastig verður að vera minnst 5°C í 12 tíma eftir notkun. Ef hætta er á að efnið þorni of hratt, þarf að verja það með því að væta svæðið eða breiða plast yfir það í 5- 7daga eftir lögn.
Staurasteypa: Stillið staurinn af í a.m.k. 90cm djúpri afmarkaðri holu. Hellið til skiptis þurrefni og vatni í holuna og hrærið í holunni sjálfri. Bætið möl útí til að styrkja steypuna.
Uppsteypa: Hellið múrblöndunni í mótin. Víbrið eða sladdið blautt efnið til að tryggja að hún fylli mótið.
Þú færð gæða múrvörur í Múrbúðinni
Tengdar vörur
Sjá allt í Múrefni














