DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

Weber Multi 280 18kg

Vörunúmer: WEB-5200951990
5.396 kr.m/vsk
Á lager

Weber Multi 280

Weber Multi 280 er fjölnota, sement­bundinn límmúr / rappmúr / filtmúr sem hefur einstaka límeiginleika. Weber Multi 280 úr ofnþurrkuðum sandi og sérhæfðum viðbótarefnum sem gefa honum bæði frábæra viðloðun og auðveldan í vinnslu. Efnið er opið, þannig að raki kemst út úr veggnum án þess að valda kalkútfellingum

Hentar vel til filtunar og gefur fallega áferð

Tækniblað – Weber multi 280
Öryggisblað – Weber multi 280
EPD – Weber multi 280

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Weber Multi 280

Weber Multi 280 er fjölnota, sement­bundinn límmúr / rappmúr / filtmúr sem hefur einstaka límeiginleika. Weber Multi 280 úr ofnþurrkuðum sandi og sérhæfðum viðbótarefnum sem gefa honum bæði frábæra viðloðun og gerir hann auðveldan í vinnslu. Efnið er opið, þannig að raki kemst út úr veggnum án þess að valda kalkútfellingum

Þykktarsvið er 1-8mm. Umbúðir: 18kg poki. Vatnsþörf í poka er ca 3,6L
Vinnslutími er 60 mín

Helstu notkunarsvið

Flokkur Dæmi um notkun Hagnýt athugasemd
Límmúr á undirlag Steinn, steypa, forsteyptir einingar, glertrefjaplötur o.fl.. Bindst jafnvel við ógleypin efni eins og málaða steypu og flísar* .
 

Þunnpússun / filtun

„Filta“ eða jafna steypuyfirborð fyrir málningu Má vinna allt niður í 1 mm þykkt. Mjög veðrunarþolið.
 

Styrktarpússun

Hentar sérstaklega vel þegar þarf að styrkja veika fleti með vír-/trefjaneti. Dregur úr sprungumyndun í óstöðugu undirlagi.
 

Pússun á sökklum

Neðstu 30–50 cm útveggja Mjög sterk veðrunarkápa.
Líma upp einangrun Mikil viðloðun þýðir að Multi 280 hentar mjög vel til að líma upp einangrun.

Helstu eiginleikar Weber Multi 280

  • *Yfirburða viðloðun og líming – heldur jafnvel á glansandi flísum ef þær eru grunnaðar rétt
  • Mikil styrkur – hentar sem burðarlag þar sem mikið álag er t.d. á sökklum
  • Góð vinnuhæfni – langur opinn tími, auðvelt að jafna og slétta
  • Sveigjanleg þykkt – 1 mm upp í um 8 mm í einu lagi
  • Óbrennanlegt (A1) – uppfyllir ströngustu brunakröfur

Takmarkanir og varúð

  • Sölt í gömlu múrverki geta fært sig í gegnum límmúrinn og myndað útfellingar eða flögnun.
  • Vetrarnotkun: Ef gert er við í rökum/frosnum vegg yfir vetur harðnar múrinn seint – frágangur þarf skjól og 5 °C lágmarkshita.

Forvinna/undirlag.
Undirlagið þarf að vera hreint, þurrt og ekkert laust ryk eða múr. Allt sem getur minnkað viðloðun þarf að fjarlægja

Framkvæmd:
Til að auka viðloðun – Berið efnið lárétt á með tenntum glattara. Pússningarmúrinn t.d. Weber Multi 280 eða Weber REP 980 er síðan borið yfir eftir 1-2 daga..

Borið á ógleypið undirlag – Undirlagið skal vandlega hreinsað. Efnið er borið á undirlagið. Afrétt og grófpússað. Yfirmúrinn má setja á þegar Weber multi 280 er fullþurrt.(ca 2 dagar m.v. 15-20°C)

Styrkingar / múrnet.
Berið Weber multi 280 á í ca 5-6mm þykku lagi þrýstið síðan trefjaneti í efnið. Daginn eftir má síðan setja meira efni á þannig að heildarþykktin verði um. 8mm. ATH að styrkingarnetið verður að vera í ytri þriðjungi múrhúðunarlagsins.

Þú getur séð fleiri múrvörur með því að smella HÉR

Tengdar vörur

Sjá allt í Múrefni

Meira frá Weber

Allar Weber vörur