DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

WEBER REP 980 STEININGARLÍM OG FILTUNARMÚR (GRÁTT) (MAXIM) (20KG)

Vörunúmer: WEB-5200875421
4.799 kr.m/vsk
Á lager

REP 980 er hágæða steiningarlím og filtunarmúr. REP 980 er einnig notað til smærri viðgerða, yfir viðgerðir, á svalir og tröppur og einnig sem kústunarefni þegar þörf er á að fríska upp á útlit.

Weber Rep 980 – Tækniblað
Weber Rep 980 – Öryggisblað
Weber Rep 980 – DOP

 

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Græn vara · Leyfilegt í umhverfisvottuð hús · Pússningarefni · Steiningarlím
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Ef nota á REP 980 til filtunar, steiningar og viðgerða á steypu, þá fara 3,2-3,6l af vatni í pokann, sem þýðir c.a. 1,8kg á m2 m.v. 1mm þykkt lag. Sé ætlunin að nota REP 980 til kústunar þá fara 4,8-5,2l í 20kg poka. Fást þá um 13l af múrblöndu. Fer þá efnisþörf eftir því hversu þykkt er kústað og fjölda umferða

Notkunarsvið
REP 980 múrefni er til vatnsþéttingar, verndunar og minni viðgerða á múr og steinsteypu t.d.:

– á svalargólf, stéttar og aðra lárétta fleti.

– á múraða fleti eftir viðgerðir.

– á grunna, brýr, steyptar einingar og önnur mannvirki.

– sem límingarefni fyrir steiningu.

– sem límingarefni undir vatnsbretti.

– til flísalagna og fúgunar.

Kostir
REP 980 er gufuopið, vatnsþétt og frostþolið sementsbundið efni sérstaklega ætlað til fíltunar kústunar og í smærri viðgerðir í lagþykkt 0-10 mm. REP 980 hefur mjög góða viðloðun við undirlagið og ver steypu gegn mengun af völdum útblásturs bifreiða. Hentar fyrir fínpúsningu.

Þykktarsvið
0- 10 mm

Má fara í 20 mm í holu eða sprungufyllingum.

Eiginleikar
Vatnsmagn í 20 kg poka:

Til viðgerða : 3,2 – 3,6 lítrar

Til kústunar: 4,8 – 5,2 lítrar

Notkunartími
Til viðgerða: 30 – 45 mín.

Til kústunar: 1-2 tímar.

Frostþolið samkvæmt staðli SS 137244

Undirvinna
Viðgerðarflöturinn skal vera hreinn og laus við alla lausa og morknaða steypu. Skola skal burtu öllu ryki og lausum múr.

Grunnur
Grunna skal flötinn með Weber Floor 4716 grunni. (1 hluti grunnur og 3 hlutar vatn.)

Á járnfleti og steypurstyrktarjárn er mælt með meðhöndlun með REP 05.

Til viðgerða
1. Setja skal 3,2 – 3,6 lítra af vatni í hræriílátið.

2. Hellið úr 1 poka af REP 980 meðan hrært er. Mælt er með að nota hæggenga borvél. Hræra skal í 2-3 mín. eða þangað til allir kekkir eru farnir. Látið síðan standa í ca 5 mín. og hrærið aftur í 1. mín. fyrir notkun.Til kústunar: Eftir að búið er að hræra eins og að ofan greinir, þá skal bæta í blönduna 1-2 lítrum af vatni. Þá er efnið tilbúið til kústunar.

3. Mælt er með að farið sé 2 til 3 umferðir.

5. Hitastig skal vera yfir 5 gráður í sólarhring eftir notkun. Gæta skal að of hraðri þornun með því að bleyta múrinn eða breiða yfir með plasti.

Vottun DS/EN 998-1

Þú færð gæða múrvörur í Múrbúðinni

Varan er samþykkt vara í SCDP (Supply Chain Declaration Portal Svansins)í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).

Tengdar vörur

Sjá allt í Múrefni

Meira frá Weber

Allar Weber vörur