

Murexin Repol VS 10 Þansteypa 25kg
Frostþolin þansteypa, sem harðnar fljótt, flýtur vel og sem nær fljótt miklu þrýstiþoli. Má nota innanhúss og utanhúss. Hentar til að festa akkeri, fylla upp í holur (þe. á forsteyptum einingum), við vegaframkvæmdir ofl. Fyrir þykktir 2-100mm og allt að 150 mm ef fyllt er upp með möl 4-8 mm að kornastærð.
Ath, vörumynd er a 30kg poka en varan er í 25kg poka
Murexin VS 10 Þansteypa – Tækniblað
Murexin VS 10 Þansteypa – Öryggisblað
- Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
- Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
Vörulýsing
Vatnsheld og frostþolin þansteypa úr sementi, klórlaus, flýtur vel og hefur plastáferð.
Blöndun / ásetning
Notið 3L – 3,25 L af vatni í 25 kg. Blandið við vatn varlega (hægri stillingu á blandara/tromlu í um 3-4 mín).
Hámarksþykkt steypulags er 10 cm.
Fyrir þykktir 2-100mm og allt að 150 mm ef fyllt er upp með möl 4-8 mm að kornastærð.
Leggið ekki við lægra hitastig en +15°C.
Hellið steypu í steypumót eingungu frá einni hlið, jafnið út með steypuvíbrator ef þörf þykir, og passið að næg loftræstiop séu til staðar í steypumótinu.
Eftirmeðferð:
Verndið steypuyfirborðið gegn of miklum þurrki með röku lagi eða vörn gegn uppgufun. Mót má fjarlægja eftur u.þ.b. hálftíma.
Kornastærð: 0-4 mm
Þrýstiþol: eftir 1 klst ca 7 N/mm2, eftir 6 klst ca 10 N/mm2, eftir 1 dag ca 15 N/mm2, eftir 3 daga ca 25 N/mm2, eftir 7 daga ca 35 N/mm2, eftir 28 daga ca 40 N/mm2.
Staðlar: EN 1504-6
Þú færð gæða múrvörur í Múrbúðinni
Tengdar vörur
Sjá allt í Múrvörur














