DEMOTillaga að nýrri vefverslun Múrbúðarinnar — allar vörur og verð eru sótt beint úr núverandi verslun.Hvað er nýtt? →
412 2500 3 verslanir: Kletthálsi, Selhellu & Fuglavík Smelltu & sæktuGott verð fyrir alla, alltaf!
Weber

Weber Multi 280 hvítur 18kg

Vörunúmer: web-5200959052
11.980 kr.m/vsk
Á lager

Weber Multi 280 hvítur er hágæða filtmúr / límmúr sem notaður er sem lokaumferð við þunnpússningu eða filtun. Má nota bæði úti og inni.

Weber Multi 280 hvítur hefur sömu frábæru viðloðun og vinnslueiginleika eins og Weber Multi 280 grár, en er framleiddur úr hvítu sementi og hvítum íblöndunarefnum sem gefur fallega og varanlegt útlit.

Weber Multi 280 hvítur má nota í 1mm – 8mm þykku lagi. Hægt að nota sem steiningarlím.

Efnið er opið, þannig að raki kemst út úr veggnum án þess að valda kalkútfellingum

1
  • Smelltu & sæktu í Kletthálsi 7, Selhella 6, Fuglavík 18
  • Fagfólk: reikningsviðskipti í boði
  • Filtmúr
Bera saman við sömu vöru á núverandi vef

Vörulýsing

Weber Multi 280 hvítur er yfirborðspússning / filtmúr / límmúr sem endist lengi, jafnvel í krefjandi umhverfi. Múrinn hefur sömu góðu viðloðun og vinnslueiginleika og Weber Multi 280 grár er þekktur fyrir. Weber Multi 280 hvítur er sérstaklega hannaður sem sterkur undirmúr sem hægt er að styrkja með glertrefjaneti.

Varan er framleidd úr krómhlutlausum sementi. Innihald vatnsleysanlegs króms er minna en 2 mg á hvert kg af þurru sementi

Blöndun

Weber Multi 280 hvítt á að blanda í hrærivél eða með borvél / múrhræru. Bætið hreinu vatni við þar til æskileg áferð næst, að hámarki 3,6 lítrar af vatni mega fara í hvern poka.

Blandið í 3–5 mínútur.

Einnig má sprauta efninu með hefðbundinni múrdælu og skal vatnsinnihald þá vera  max. 20%. Notið alltaf efni úr sömu framleiðslulotu og með sama vatnsmagni til að lágmarka litamun.

Pússning á óísogandi undirlag (t.d. flísar):

Undirlag skal hreinsa vel af efnum sem mynda filmu. Alltaf framkvæma pússningu í tveimur lögum. Fyrsta daginn er Weber Multi 280 grár notaður sem viðloðunarlag, og í fyrsta lagi daginn eftir er Weber Multi 280 hvítt borið á í æskilegri þykkt. Yfirborðið er filtað þegar múrinn er orðinn snertiþurr.

Þunnpússun / filtun:

Weber Multi 280 hvítt er dregið á t.d. með stálspaða. Þegar múrinn er snertiþurr er yfirborðið unnið með filtbretti eða sambærilegu verkfæri til að ná æskilegri áferð.

Styrktarpússun (pússning með neti):

Pússningin skal framkvæmast í tveimur umferðum. Fyrst eru smáatriði styrkt: við tengi milli sökkuls og veggs (u.þ.b. 15 cm yfir jörðu) er weber.therm 400/401 byrjunarlisti límdur með Weber Multi 280 gráum. Við horn, hurðar- og gluggakanta eru hornlistar weber.therm 314 festir, og skáarmir settar við op s.s. glugga og hurðar til að minnka sprunguhættu.

Daginn eftir er fyrsta lag Weber Multi 280 gráum borið á (ca. 5–6 mm). Í blautan múrinn er lagt glertrefjanet með 10 cm skörun. Netið er jafnað inn með stálspaða.

Í fyrsta lagi daginn eftir er lag af Weber Multi 280 hvítt borið á (2–3 mm) þannig að heildarþykkt verði um 8 mm. Þegar múrinn er snertiþurr er yfirborðið filtað.

Tækniblað: Produktdatablad-Multi_280_Hvid-03.25

Öryggisblað: Sikkerhedsdatablad-weber_Multi_280_Hvid-03.25

EPD fyrir Weber Multi 280 litaða (fleiri litir eru til en hvítur): EPD-weber_Multi_280_farvet-05.25

Upplýsingar um litaðar útgáfur af Weber Multi 280: Montagevejledning-weber_Multi_280_Farvet-02.25

Tengdar vörur

Sjá allt í Múrefni

Meira frá Weber

Allar Weber vörur